Vörukarfan hefur hækkað síðan í fyrra í öllum verslunum nema Víði

Verð á vörukörfu ASÍ hefur hækkað frá september í fyrra í öllum verslunum nema hjá Víði þar sem hún lækkaði um 3%. Hækkunin er mest 8% hjá Iceland en minnst hjá Krónunni 1%.

Séu skoðaðar verðbreytingar frá því í september 2014 (vika 37), febrúar 2015 (vika 9) og í september 2015 (vika 38) má sjá að vörukarfan hefur hækkað mest um 8% hjá Iceland, 6% hjá Hagkaupum, 5% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, 4% hjá Samkaupum-Úrvali og 10/11, 3% hjá Bónus, Samkaupum-Strax og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga, 2% hjá Nettó og Kaskó, en hækkunin er minnst hjá Krónunni eða um 1% á þessu 12 mánaða tímabili. Á sama tíma hefur vörukarfan lækkað í verði hjá Víði um 3%. Mælingar Hagstofunnar á verðlagi á mat og drykk sýna 4,4% meðaltals hækkun á tímabilinu september 2014 þar til í september 2015.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úrvali, Víði, 10/11, Samkaupum-Strax, Kaupfélagið Skagfirðinga, Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga og Kaskó.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar. 

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Tekið af síðu ASÍ