Kjarasamningur VLFS og Samtaka atvinnulífsins.



Kjarasamningur Verkalýðsfélags Suðurlands við Samtök atvinnulífsins er gerður með atbein Starfsgreinasambands Íslands. Kjarasamningar fjalla um kaup og kjör. Til að mynda laun, vinnutíma, orlof, yfirvinnu, uppsagnarfrest, veikindarétt og fleira.
Þann 3. desember 2022 undirrituðu aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði.
Kauptaxtar hækka um að lágmarki 35.000 kr. frá 1. nóvember 2022 skv. nýrri launatöflu. Samningurinn felur í sér lagfæringu á launatöflunni sem gerir það að verkum að hækkun getur orðið allt að 52.000 kr. á mánuði.
Mánaðarlaun (laun þeirra sem ekki eru á kauptöxtum) hækka um 33.000 kr. frá 1. nóvember 2022.
Kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækka um 5,0% frá 1. nóvember 2022, nema um annað hafi verið samið.
Bónusar og akkorð í fiskvinnslu hækka um 8% sem mun skila fiskvinnslufólki á bilinu 6.000 – 34.000 kr. hækkun á mánuði.
Desemberuppbót á árinu 2023 verður 103.000 kr. miðað við fullt starf.
Orlofsuppbót miðað við fullt starf verður 56.000 kr. á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2023.
Hagvaxtaraukinn sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóvember. Það mun skila ávinningi sem nemur 78.000 kr. eða 5.200 kr. á mánuði á samningstímanum og er sú hækkun meðtalin í áðurnefndum taxta- og mánaðalaunahækkunum.