Í gildi er þjónustusamningur milli félagsins og LMB Mandat lögmannsstofu www.lmbmandat.is. Stendur félagsmönnum til boða að bóka viðtalstíma hjá lögmanni í gegnum félagið, sér að kostnaðarlausu. Viðtalstímar eru mánaðarlega á skrifstofu félagsins á Hellu eða í fjarfundi. Lögmaður veitir ráðgjöf á öllum sviðum lögfræðinnar í viðtalstímunum og ef félagsmenn óska eftir frekari ráðgjöf stofunnar er hún veitt á sérstökum kjörum í samræmi þjónustusamning félagsins og LMB Mandat. Áréttað er að þjónusta stofunnar er ekki bundin við málefni sem tengjast vinnurétti heldur er félagsmönnum einnig heimilt að nýta stofuna í hverskonar lögfræðilegum álitaefnum. Sama gildir ef félagsmenn vilja kanna rétt sinn í kjölfar slyss, hvort sem um ræðir vinnuslys, umferðarslys eða frítímaslys. Af slíkum málum hafa lögmenn stofunnar mikla reynslu.
Panta þarf viðtalstíma í lögfræðirágjöf hjá lögmanni félagsins með því að hringja á skrifstofu félagsins í síma 487-5000 með a.m.k. dags fyrirvara.