Tveir buðu sig fram til 1. varaforseta ASÍ. Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Niðurstaða kosningarinnar varð þessi:

Atkvæði féllu þannig:

Guðbrandur Einarsson    115        40,2%
Vilhjálmur Birgisson       171        59,8%

Heildarfjöldi atkvæða                  289
Auðir og ógildir                           3
Gild atkvæði                               286

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, sem hafði tilkynnt framboð til 1. varaforseta, dró framboð sitt til baka fyrr í dag.

Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands var sjálfkjörinn í embætti 2. varforseta