Verkalýðsfélag Suðurlands hefur tekið í sölu fyrir sumarið 2021 Veiðikortið. Verð fyrir félagsmenn er 4.500 kr en almennt verð er 8.900kr. Hægt er að nálgast kortið á skrifstofu okkar á Hellu. Við getum einnig sent það til þín í pósti, hafa verður þá samband við okkur á skrifstofunni í síma 487-5000.

Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 36 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Nú gefst fólki loksins kostur á að stoppa við falleg vötn, í skemmri eða lengri tíma, án þess að þurfa að eyða miklum tíma í að finna út hvert á að fara til að kaupa veiðileyfi, eða hvort það sé fiskur í vatninu og þar fram eftir götum.Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir.  Einnig eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum. Allur texti í bæklingi má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku og auk þess hægt að nálgast rafræna útgáfu.