Kæru félagar

Nú þurfum við hjá Verkalýðsfélagi Suðurlands á ykkar hjálp að halda. Við viljum biðja ykkur að taka þátt í stuttri skoðanakönnun um stöðu ykkar. Það tekur stuttan tíma og allir sem svara komast í pott og geta unnið 30.000 króna gjafakort.
Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem var stofnuð af ASÍ og BSRB árið 2020. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, heilsu og áhrifa heimsfaraldursins. Niðurstöður hennar munu hjálpa okkur við að greina stöðu launafólks á Íslandi. Það tekur aðeins um 10 mínútur að svara könnuninni. Spurt er um húsnæði, fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar, heilbrigðisþjónustu, sumarfrístöku, áhrifa heimsfaraldursins í starfi sem og á einkalíf. Könnunina finnið þið hér: https://www.research.net/r/stadalaunafolks2021
Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og mun sjá um úrvinnslu á niðurstöðum. Könnunin verður opin í tvær vikur og hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða í tölvu. Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku. Þrír þátttakendur vinna 30.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna. Könnunin opnar miðvikudaginn 24. nóvember og verður lokað þriðjudaginn 8. desember. Við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.