Rafræn atkvæðagreiðsla allra 18 aðildarfélaga SGS um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins hefst í dag, miðvikudaginn 13. mars, kl. 12:00 og lýkur miðvikudaginn 20. mars kl. 9:00. Niðurstöður verða kynntar strax í kjölfarið.

Hægt verður að greiða atkvæði á heimasíðu félagsins, en slóð á kosninguna er hér og virkjast um leið og kosning hefst, þ.e. á slaginu kl. 12:00 í dag, 13. mars. 

Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki eða íslykil til að kjósa.

Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 09:00 miðvikudaginn 20. mars en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins vel og nýta sinn atkvæðisrétt!

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og kjarasamninginn má finna á upplýsingasíðu um samninginn.