Ráðstefna um málefni ræstingarfólks
Starfsgreinasamband Íslands vill vekja athygli á að mánudaginn 18. mars næstkomandi kl. 10:00 – 17:00 mun Báran stéttarfélag standa fyrir ráðstefnu um málefni ræstingarfólks. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Selfossi og stednur frá kl. 10:00 til 17:00. SGS hvetur starfsfólk í ræstingum sem og aðra áhugasama um að fjölmenna á ráðstefnuna, en hún er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á vef Bárunnar – www.baran.is