1.júní ár hvert skal greiða orlofsuppbót hjá starfsfólki á almennum vinnumarkaði og hjá ríkinu.
Á árinu 2020 nemur upphæðin 51.000 kr. Greiðslur þessar miðast við fullt starf á orlofsárinu (1.maí-30.apríl). Greitt er hlutfallslega fyrir hlutastörf.

Eftir eins árs starf hjá sama fyrirtæki teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofsuppbótar.

Launfólk, fylgist með hvort umsamdar uppbætur skili sér á launaseðli sem kemur til greiðslu þann 1.júní nk.
Frekari upplýsingar má nálgast á skrifstofu félagsins í síma 487-5000 eða senda erindi með tölvupósti á netfangið vs@vlfs.is