Verðlagseftirlit ASÍ gefur í dag út mælaborð þar sem skoða má verðsamanburð milli verslana, bæði í heild, eftir vöruflokkum og niður í stakar vörur. Gögnin uppfærast daglega með nýjustu verðum sem verðlagseftirlitið hefur aflað.  Með mælaborðinu hafa neytendur nú greiðan aðgang að vöruverði í ólíkum verslunum. Eru þetta sömu gögn og áður hafa aðeins verið aðgengileg í gegnum smáforrit verðlagseftirlitsins, Prís.

Verðbil misjafnt eftir vöruflokkum

Þegar mælaborðið er skoðað er í fyrsta lagi greinilegt að breitt verðbil er á verslunum, eins og fyrri kannanir verðlagseftirlitsins hafa leitt í ljós. Á heildina litið er meðalfjarlægð verða frá lægsta verði minnst í Bónus, undir 1%, en mest í 10-11, um 80%

Mikill verðmunur á stökum vörum

Þegar flett er á aðra síðu mælaborðsins er hægt að skoða flokkana vöru fyrir vöru og sjá vörum raðað eftir verðbili. Til dæmis er Thule pilsner í dós sú vara sem er með eitt mesta verðbilið; kostar 119kr í Bónus en 449kr í 10-11.

Séu undirflokkar valdir sjást verðbilin á hverri vöru fyrir sig í undirflokkunum. Þegar smellt er á Kaffi, te og kakó sést að mesta verðbilið er á Te&Kaffi French Roast hylkjum, sem eru meira en tvöfalt dýrari í 10-11 en í Bónus.

Fyrir páskana getur borgað sig að gera samanburð á vöruverði. Þannig kostar 500 ml dós af Egils malt á bilinu 219 kr. í Bónus og upp í 499 kr. í 10-11. Kippa af Pepsí í dós getur verið allt að 72% dýrari í  Krambúðinni heldur en ódýrari verslunum á borð við Bónus, Krónuna, Nettó og Fjarðarkaup.

Verðkannanir í rauntíma

Vert er að athuga að um stórfellda gagnaöflun er að ræða. Yfir tuttugu þúsund verðpunktar eru í safninu með nokkur þúsund uppfærslum á dag. Gögnin eru yfirlesin, en villur geta slæðst í gagnasafnið. Ábendingar um villur eða vafasamar færslur má senda á verdlagseftirlit@asi.is