Uppstillinganefnd Verkalýðsfélags Suðurlands hefur sent frá sér tillögu að lista samkvæmt lögum félagsins. Nefndin leggur fram tillögu að lista í stjórn, varastjórn, nefndir og ráð. Listi nefndarinnar liggur frammi til kynningar á skrifstofu félagsins, Suðurlandsvegi 3, Hellu frá og með 11.apríl.

Á aðalfundi Verkalýðsfélagsins 2018 verður kosið um formann, ritara og tvo meðstjórndendur sem og tvo varastjórnarmenn, kosið er til næstu tveggja ára.

Einnig er kosið í trúnaðarráð, nefndir og ráð fyrir starfsárin 2018 – 2020

Frestur til að bjóða sig fram eða bera fram aðrar tillögur til nefndarinnar er til og með 23. apríl 2018 og þurfa tillögurnar að berast skrifstofunni fyrir þann tíma.

Uppstillinganefnd Verkalýðsfélags Suðurlands.