Kauptaxtar sem gilda frá 1.janúar 2022 eru nú komnir á heimasíðu undir kjaramál. Hækkanir sem koma til greiðslu vegna janúar mánaðar eru greiddar út næstu mánaðarmót. Misjafnt er eftir kjarasamningum og launamyndun hvernig hækkunin skilar sér, sjá hér fyrir neðan:

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði: (kjarasamningur SGS og SA)
Kauptaxtar á almenna markaðinum hækkuðu um kr. 25.000-, almenn mánaðarlaun fyrir fullt starf hækkuðu um kr. 17.250. Aðrir kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækkuðu um 2,5% á sömu dagsetningu. Einnig hækkuðu lágmarkstekjur fyrir fullt starf og verða 368.000 kr. á mánuði fyrir fullt starf frá 1. janúar 2022.

Starfsfólk sveitarfélaga: (kjarasamningar SGS og Launanefndar sveitarfélaga)
Kauptaxtar hjá sveitarfélögunum hækkuðu um kr. 25.000-.

Starfsfólk ríkisins: (kjarasamningur SGS og Ríkissjóður)
Kauptaxtar hjá ríkinu hækkuðu um kr. 17.250.