Laun um páskana

Vert er að minna á að samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki álag á stórhátíðum, en næstu dagar sem eru stórhátíðir teljast föstudagurinn langi og páskadagur. Skírdagur og annar í páskum teljast auk þess almennir frídagar.

Öll vinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi, sem er 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Fyrir yfirvinnu á öðrum frídögum skal greiða 80% álag á dagvinnutímakaup eða 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Í vaktavinnu skal greiða 55% vaktaálag á sérstökum frídögum en 90% vaktaálag á stórhátíðardögum samkvæmt samningi SGS við ríki og sveitarfélög.