Kæru félagsmenn !

Nú þurfum við á ykkar hjálp að halda. Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins er að vinna að könnun um stöðuna á vinnumarkaði. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna, sér í lagi meðal atvinnuleitenda. Varða er rannsóknarstofnun sem stofnuð var af ASÍ og BSRB nýverið.

Könnunin er tvískipt. Fyrri hlutanum svara allir og tekur það aðeins um fimm mínútur. Þar er spurt um húsnæði, fjárhagsstöðu, fátækt, líðan, heilsufar, heilbrigðisþjónustu, sumarfrístöku, nýtingu hlutabótaleiðarinnar, viðhorf til atvinnuhorfa og breytinga á atvinnuleysisbótakerfinu.

Seinna hluta könnunarinnar svara einungis þeir sem eru í atvinnuleit eða á uppsagnarfresti og gæti það tekið um 15 mínútur. Þar er spurt um búferlaflutninga í tengslum við starf, atvinnuleit, hverskonar starfi viðkomandi er tilbúinn að taka, hvort hafi verið leitað að starfi, ef ekki þá hvers vegna, viðhorfi til fræðslu og náms, viðhorf til þjónustu Vinnumálastofnunar og stéttarfélags.

Könnunina finnur þú hér: https://www.research.net/r/vinnumarkadur

Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og mun sjá um úrvinnslu á niðurstöðum.

  • Hægt er að svara könnuninni í síma, spjaldtölvu eða í tölvu.
  • Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
  • Þrír þátttakendur vinna 30.000.kr gjafakort fyrir þátttökuna
  • Könnunin verður opin til 8.desember