Þann 3. júlí, undirrituðu 17 aðildarfélög Starfsgreinasambandsins kjarasamning til fjögurra ára við Samband íslenskra sveitarfélaga. SGS vísaði kjaradeilunni til ríkissáttasemjara þann 20. júní og síðan þá hafa samningsaðilar fundað stíft undir verkstjórn ríkissáttasemjara í þeim tilgangi að ganga frá samningi sem báðir aðilar getað unað við. Þau fundarhöld báru loksins árangur.

Rafræn atkvæðagreiðsla mun hefjast kl 12:00 föstudaginn 5. júlí og lýkur mánudaginn 15. júlí kl 09:00.

Við höfum sett upp upplýsingasíðu um nýja kjarasamninginn og þar mun birtast hlekkur til að kjósa þegar kosningin opnar.