Til stéttarfélaga innan Starfsgreinasambandsins um land allt  berast nú mikið af fyrirspurnum og athugasemdum vegna uppsagna, fyrirvaralausra breytinga á vaktafyrirkomulagi og fjölmargra annara atriða sem snúa að vinnufyrirkomulagi og réttindum fólks samkvæmt ákvæðum kjarasamninga.

Að gefnu tilefni ítrekar formannafundur Starfsgreinasambandsins að allar breytingar þurfa að vera í fullu samráði við starfsfólk og skorar á atvinnurekendur að nýta sér ekki núverandi aðstæðurnar til að fara á svig við gildandi kjarasamninga og brjóta á réttindum launafólks. Slíkt framferði er algerlega óásættanlegt og verður mætt af fullum þunga af hálfu félaga innan Starfsgreinasambands Íslands.