Atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga er lokið. Niðurstöður liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með rúmlega 78% þeirra sem greiddu atkvæði.

Atkvæðagreiðslan var rafræn og sameiginleg hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins. Stóð hún yfir frá 14. til 26. september. Á kjörskrá voru 5.950 manns og var kjörsókn 14,62%. Já sögðu 684 eða 78,62%. Nei sögðu 144 eða 16,55%. 4,83% tóku ekki afstöðu.

Samningurinn gildir frá 1. október 2023 til 31. mars 2024 og tekur til allra félagsmanna aðildarfélaga SGS sem starfa hjá sveitarfélögum.

Hægt er að nálgast kjarasamninginn hér.

Hægt er að nálgast kynningar glærur um samningin hér.