Atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga er lokið. Niðurstöður liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með rúmlega 78% þeirra sem greiddu atkvæði.
Atkvæðagreiðslan var rafræn og sameiginleg hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins. Stóð hún yfir frá 14. til 26. september. Á kjörskrá voru 5.950 manns og var kjörsókn 14,62%. Já sögðu 684 eða 78,62%. Nei sögðu 144 eða 16,55%. 4,83% tóku ekki afstöðu.
Samningurinn gildir frá 1. október 2023 til 31. mars 2024 og tekur til allra félagsmanna aðildarfélaga SGS sem starfa hjá sveitarfélögum.