Kjarasamningur Vlf.S og Ríkissjóðs
![](https://vlfs.is/wp-content/uploads/2016/07/logo_square.jpg)
![](https://vlfs.is/wp-content/uploads/2020/01/sgs.logo_.jpg)
![logo_0146_Fjarsysla-rikisins](https://vlfs.is/wp-content/uploads/2021/03/logo_0146_Fjarsysla-rikisins.jpg)
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning VLFS og ríkisins.
Rafræn atkvæðagreiðsla félagsmanna VLFS sem starfa samkvæmt kjarasamningnum hefst 16. júní kl. 15:00 og lýkur 21. júní kl. 09:00.
Til að geta kosið þarf að hafa rafræn skilríki eða íslykil.
Kjarasamningur Verkalýðsfélags Suðurlands og ríkisins 2023-2024
Helstu atriði samningsins.
- Með kjarasamningnum fylgir ný launatafla sem gildir afturvirkt frá 1. apríl 2023.
- Samningsaðilar skuldbinda sig til að fara yfir stofnanasamninga stéttarfélaga SGS á heilbrigðisstofnunum með það að marki að greina hvort til staðar sé launamunur á sömu starfsheitum/störfum í stofnanasamningum við stéttarfélög. Ef launamunur finnst milli sömu starfa verður munurinn leiðréttur frá 1. apríl 2023 þannig að tryggt sé að verið sé að greiða sömu laun fyrir sömu störf.
- Persónuuppbót (desemberuppbót) á árinu 2023 verður 103.000 kr. m.v. fullt starf.
- Orlofsuppbót á árinu 2023 verður 56.000 kr. m.v. fullt starf.
Hérna má svo nálgast frekari kynningarefni varðandi samninginn.