Starfsgreinasamband Íslands (SGS) telur einsýnt að ekki verði komist lengra í viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna endurnýjunar kjarasamnings sem rann út 31. mars 2024. Samningsaðilar hafa átt fjölmarga fundi á undanförnum vikum og mánuðum þar sem SGS hefur komið kröfum sínum málefnalega á framfæri við samninganefnd sveitarfélaganna, en því miður hafa þau fundahöld ekki skilað niðurstöðu sem SGS getur sætt sig við.

Starfsgreinasamband Íslands var og hefur verið leiðandi í mótun á launastefnu í yfirstandandi kjarasamningslotu og leggur sambandið mikla áherslu á að sú launastefna sem mótuð var við undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði 7. mars sl. haldi sér.

Í ljósi þess hversu langt er á milli aðila lítur SGS svo á að ekkert annað sé í stöðunni en að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.