Tvö landssambönd innan ASÍ héldu sín þing í síðustu viku. Starfsgreinasamband Íslands hélt sitt þing í Hofi á Akureyri dagana 23.-25. mars. Landssamband íslenzkra verzlunarmanna hittist svo á framhaldsþingi 32. þings á Hótel Hallormsstað 24.-25. mars.

Húsnæðismál og málefni lífeyrissjóðanna voru áberandi umfjöllunarefni á báðum þingum eins og sjá má í greinagóðum ályktunum sem samþykkt voru á hvoru þingi fyrir sig. Á báðum þingum er kallað eftir aðgerðum til að bregðast við neyðarástandi á húsnæðismarkaði.

Ekki urðu neinar mannabreytingar á þingi LÍV, en talsverðar breytingar urðu á stjórn SGS. Vilhjálmur Birgisson, Verkalýðsfélagi Akraness, var kosinn nýr formaður SGS og Guðbjörg Kristmundsdóttir, Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, varaformaður. Björn Snæbjörnsson lét af störfum sem formaður eftir 12 ára setu.

Hér má kynna sér ályktanir LÍV þingsins.

Hér má skoða ályktanir frá SGS þinginu.