Gerður hefur verið samningur við NTV skólann um fulla fjármögnun á 6 námskeiðum/námsleiðum sem allt eru starfsþróunarmiðuð og verkefnadrifin fjarnámskeið sem boðið verður upp á í samstarfi við aðildarfélög Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar. Félagsmenn aðildarfélaga sjóðanna munu fá námskeið að fullu niðurgreidd. Öll námskeiðin eru inni á nemendaumhverfi NTV skólans í gegnum nettenginu. Stefnt er að því að námskeiðin hefjist í byrjun nóvember. Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna HÉR

Einstaklingar skrá sig hjá NTV skólanum og mun skólinn senda reikninga beint á skrifstofu fræðslusjóðanna. Skráning R

Námskeiðin sem um ræðir eru:
Bókhald Grunnur – 8 vikur (120 kes.)
Digital marketing – 7 vikur (112 kes.)
Frá hugmynd að eigin rekstri – 4 vikur (60 kes.)
App og vefhönnun – 6 vikur (90 kes.)
Vefsíðugerð í WordPress – 4 vikur (50 kes.)
Skrifstofu og tölvufærni – 6 vikur (96 kes.)