Á 44. þingi Alþýðusambands Íslands sem haldið var í 300 manna fjarfundi í dag var samþykkt að breyta lögum sambandsins þannig að varaforsetum verður fjölgað úr tveimur í þrjá. Lagabreytingartillagan var samþykkt með naumum mun eftir fjörugar umræður. Í kosningu um þetta nýja embætti var aðeins Ragnar Þór Ingólfsson í framboði og var hann því sjálfkjörinn.

Ekki bárust nein mótframboð um embætti forseta ASÍ, 1. varaforseta né 2. varaforseta og eru Drífa Snædal, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sólveig Anna Jónsdóttir því sjálfkjörin í þau embætti. Þá voru 11 einstaklingar sem kjörnefnd gerði tillögu um til setu í miðstjórn sjálfkjörnir þar sem engin mótframboð bárust.
 
Miðstjórn ASÍ 2020-2022 verður því þannig skipuð:

ASÍ  Drífa Snædal, forseti ASÍ
RSÍ  Kristján Þórður Snæbjarnarson, Félag Rafeindavirkja, 1. varaforseti
SGS Sólveig Anna Jónsdóttir, Efling stéttarfélag, 2. varaforseti
LÍV   Ragnar Þór Ingólfsson, VR, 3. varaforseti

SGS  Hjördís Þóra Sigþórsdóttir, AFL – starfsgreinafélag
SGS  Hörður Guðbrandsson, Verkalýðsfélag Grindavíkur
SSÍ   Valmundur Valmundarson, Sjómannafélagið Jötun 
Bein aðild Guðmundur Helgi Þórarinsson, Félag vélstjóra og málmtæknimanna 
SGS   Björn Snæbjörnsson, Eining – Iðja
LÍV    Eiður Stefánsson, Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri
SGS   Finnbogi Sveinbjörnsson, Verkalýðsfélag Vestfirðinga 
SGS   Halldóra Sveinsdóttir, Báran – stéttarfélag
Samiðn  Hilmar Harðarson, Félag iðn- og tæknigreina                     
LÍV   Harpa Sævarsdóttir, VR
LÍV   Helga Ingólfsdóttir, VR

15 varamenn í miðstjórn
SGS Þórarinn G. Sverrisson, Aldan
SGS Agniesza Ewa Ziolkowska, Efling stéttarfélag
SGS Guðrún Elín Pálsdóttir, Vklf. Suðurlands
LÍV Bjarni Þór Sigurðsson, VR
RSÍ Margrét Halldóra Arnardóttir, FÍR
SGS Daníel Örn Arnarson, Efling stéttarfélag
Samiðn Finnbjörn A. Hermannsson, Byggiðn
LÍV Sigmundur Halldórsson, VR
LÍV Gils Einarsson, VR
SGS Guðbjörg Kristmundsdóttir, VSFK
Bein aðild Berglind Hafsteinsdóttir, FFÍ
LÍV Selma Björk Grétarsdóttir, VR
LÍV Hulda Björnsdóttir, Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri
SGS Kolbeinn Gunnarsson, Verkalýðsfélagið Hlíf
SSÍ Trausti Jörundarson, Sjómannafélag Eyjafjarðar