ASÍ-UNG stendur fyrir fræðslu- og tengsladögum á Stracta Hótel, Hellu dagana 30. – 31. mars nk. Viðburðurinn er ætlaður félagsmönnum á aldrinum 16-35 ára sem hafa áhuga á réttindamálum og/eða verkalýðsmálum. Síðast þegar slíkur viðburður var haldinn var góð þátttaka og skapaðist skemmtilegt andrúmsloft.

Hvetjum endilega unga félagsmenn innan Verkalýðsfélags Suðurlands til að gefa kost á sér á fræðslu og tengsladagana. Það er ykkar að taka við starfinu og leiða það áfram til frekari sigra fyrir vinnandi fólk og þá félagsmenn sem eru hættir á vinnumarkaði enda sé áhugi til staðar hjá ykkur.

Öll aðildarfélög Alþýðusambands Íslands hafa rétt til að senda fulltrúa á viðburðinn á vegum ASÍ-UNG á Stracta Hótel, Hellu. Skráning og nánari upplýsingar eru í boði á skrifstofu Verkalýðsfélags Suðurlands. Þá er einnig hægt að fá frekari upplýsingar með því að senda skilaboð á netfangið vs@vlfs.is.