Desemberuppbót  vegna ársins 2021

Atvinnuleitendur sem staðfesta atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember á árinu 2021 og eru tryggðir samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í nóvember mánuði eiga rétt til greiðslu desemberuppbótar.

Áætlað er að greiða út desemberuppbótina 15. desember nk.

Fjárhæðir: 

Hámarksfjárhæð uppbótarinnar er 92.229 kr. og hún er aldrei lægri en 23.057 kr. 

Með hverju barni á framfærslu atvinnuleitanda er greitt aukalega 6% af óskertri desemberuppbót eða 5.534 kr. 

Greiddur er skattur af desemberuppbót. 

Skilyrði:

Staðfesta atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember 2021.

Teljast tryggður í nóvember mánuði 2021.

Til að eiga rétt á fullri desemberuppbót þarf atvinnuleitandi að hafa verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði á árinu 2021 eða meira og eiga fullan bótarétt. 

Atvinnuleitandi sem á ekki fullan bótarétt og hefur verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði eða meira fær hlutfallslega uppbót í samræmi við rétt sinn til atvinnuleysisbóta. 

Dæmi vegna hlutabótaréttar og 10 mánuði á skrá: 

  • 75% bótaréttur þá er desemberuppbót 69.171 kr. 
  • 50% bótaréttur þá er desemberuppbót 46.114 kr. 
  • 25% bótaréttur þá er desemberuppbót 23.057 kr. 

Atvinnuleitandi sem hefur verið skráður skemur en 10 mánuði atvinnulaus fær hlutfallslega desemberuppbót miðað við fjölda mánaða sem hann hefur verið á skrá og í samræmi við bótarétt sinn. 

Dæmi ef þú hefur verið skemur en 10 mánuði á skrá: 

  • Ef þú hefur verið 4 mánuði á skrá og átt 100% bótarétt þá átt þú rétt til 40% desemberuppbót eða 36.891 kr. 
  • Ef þú hefur verið 6 mánuði á skrá og átt 50% bótarétt þá átt þú rétt til 30% desemberuppbótar eða 27.668 kr. 

sjá á vef Vinnumálastofnunar https://vinnumalastofnun.is/atvinnuleitandi/fjarhaedir-og-greidslur-atvinnuleysisbota/fjarhaedir-atvinnuleysisbota/desemberuppbot-vegna-arsins-2021