Desemberuppbót er eingreiðsla sem ber að greiða samkvæmt kjarasamningum. Upphæðin ákvarðast af starfstíma og starfshlutfalli. Uppbótin greiðist sjálfstætt og án tengsla við laun.

Við hvetjum félagsmenn okkar til að fylgjast með hvort desemberuppbótin verði greidd. Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert.

Desemberuppbót 2023 er:

Almenni samningur milli SGS og SA – 103.000kr

Samningur SGS og Sambands Íslenskra Sveitafélaga – 131.000kr

Samningur f.h. Ríkissjóðs og SGS – 103.000kr

Bændasamtök Íslands og SGS – 103.000kr