www.sgs.is

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.

Upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2016:

Full desemberuppbót árið 2016 er kr. 82.000 hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
Full desemberuppbót árið 2016 er kr. 82.000 hjá þeim sem vinna hjá ríki.
Full desemberuppbót árið 2016 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum er kr. 106.250.