Atkvæðagreiðsla um nýjan samning við SA
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins verður með rafrænum hætti og fer fram frá kl. 8:00 föstudaginn 12. júní til kl. 12:00 mánudaginn 22. júní nk.
Allir félagsmenn eru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á skrifstofum síns félags. Félagsmenn fara inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins (www.sgs.is) og smella á „Kjarasamningar 2015“ á forsíðunni. Þar getur viðkomandi greitt atkvæði með því að nota lykilorðið sem hann fær sent í pósti.
Allir kosningabærir félagsmenn fá sendan kynningarbækling í pósti í tengslum við atkvæðagreiðsluna, en bæklingurinn inniheldur m.a. lykilorð viðkomandi.
Tekið af heimasíðu SGS