Vakin er athygli á því að frá og með janúar 2024 mun innheimta félagsgjalda stofnast sem krafa í heimabanka.  Eftir þann tíma verður ekki boðið upp á millifærslur. Er það gert til að auka skilvirkni, bæta vinnsluhraða og auka gegnsæi og öryggi.

Launatengdum gjöldum er skilað mánaðarlega til félagsins, eindagi er í lok mánaðar og því nægt svigrúm til að greiða án dráttarvaxta eða vanskilagjalda.

Jafnframt er bent á að við tökum á móti skilagreinum í rafrænu formi og eru upplýsingar um rafræn skil á vefsíðu félagsins og á skilagrein.is.

Sjóðsnúmer Verkalýðsfélags Suðurlands er 2224.

Stéttarfélagsnúmer Verkalýðsfélags Suðurlands er 224.