Stefnan í komandi kjaraviðræðum mörkuð á þingi SGS

Komandi kjarasamningar voru Birni Snæbjörnssyni formanni Starfsgreinasambandsins hugleiknir í setningarræðu hans á 4. þingi SGS sem hófst í dag á Akureyri. Í ræðu sinni sagði hann m.a. „Samstaða og samvinna er hornsteinn Starfsgreinasambandsins, sem er og á að vera, vettvangur sameiginlegrar kjarabaráttu, samtök með meira afli en einstök félög geta haft, til að mynda þann slagkraft sem nauðsynlegur er í baráttu við atvinnurekendur og ríkisvald.“

Í ljósi þess að aðildarfélög SGS eru í miðri samningagerð verða næstu tveir dagar nýttir til þróa stefnu og markmið sambandsins í kjaramálum verkafólks á komandi misserum en ekki síður til að tryggja aukinn samtakamátt. Áherslur aðildarfélaga Starfsgreinasambandins eru hækkun lægstu launa sem er áhrifríkasta leiðin til að draga úr misrétti í samfélaginu. Aðrir þættir á borð við uppbyggingu félagslegs íbúðakerfis verða einnig ofarlega á baugi í kjaraviðræðunum en Björn sagði verkalýðshreyfinguna tilbúna „í samráð og samstarf við stjórnvöld um húsnæðiskaupa- og leigukerfi á félagslegum grunni enda er þetta einn stærsti útgjaldaliður heimilanna og skiptir miklu fyrir lífsgæði og lífskjör hvernig staðið er að húsnæðismálum.“

Að lokum var Birni tíðrætt um nýframlagt fjárlagafrumvarp sem hann sagði meingallað og til að hægt væri að ljúka kjarasamningum þyrfti að fara í töluverðar breytingar á því og hvatti hann stjórnvöld til samráðs við aðila vinnumarkaðarins svo hægt væri að skapa víðtæka sátt um það.

Þess má geta að félags- og húsnæðismálaráðherra tók að hluta til undir þessar áhyggjur í ávarpi sínu á þinginu og lýsti því yfir að hún mun leggja sitt af mörkum til að auka framlög til vinnumarkaðsaðgerða í baráttunni gegn atvinnuleysi.

Tekið af síðu ASÍ