Hámark styrkja hækkað í kr. 70.000.-


Stjórnir þriggja fræðslusjóða; Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt sem félagið er aðili að, hafa samþykkt eftirfarnadi hækkanir á einstaklingsstyrkjum út sjóðnum:


Stjórn Landsmenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 70.000 kr. frá og með 1. júlí nk. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 70.000 kr eða mest 75% kostnaðar.

Hækkun á geymdum rétti (uppsafnaður réttur) er eftirfarandi:

• 2015 verður hægt að taka út kr. 190.000.- fyrir eitt samfellt nám/námskeið. Ferðakostnaður   vegna náms getur að hámarki orðið kr. 70.000.- (nær til náms sem hefst eftir 1.júlí 2015)
• 2016 verður hægt að taka út kr. 200.000.- og 2017 verði upphæðin orðin 210.000.-

Ekki hefur verið gerð breyting á styrkjum til meiraprófs eða til tómstundanámskeiða.
Hækkunin nær til þess náms sem hefst eftir 1. júlí 2015.


Stjórn Ríkismenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 75.000 kr. f.o.m. 1. júní 2015. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 75.000 kr eða mest 75% kostnaðar.
Hækkun á geymdum rétti (3ja ára) verður til samræmis við þessa hækkun kr. 225.000.-
Engin breyting er á styrkjum til meiraprófs eða styrkum til tómstundanámskeiða.
Hækkunin nær til náms/námskeiða sem hefjast eftir 1. júní 2015.

Stjórn Sveitamenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 75.000 kr. frá og með 1. júní sl. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 75.000 kr eða mest 75% kostnaðar.
Hækkun á geymdum rétti (3ja ára) verður til samræmis við þessa hækkun kr. 225.000.-
Engin breyting er á styrkjum til meiraprófs eða styrkum til tómstundanámskeiða.

Hækkunin nær til náms/námskeiða sem hefjast eftir 1. júní 2015.

Verkalýðsfélag Suðurlands hvetur félagsmenn að nýta sér námsstyrkina til að efla sig á vinnumarkaði og auka lífsgæðin!