Atvinnuþátttaka eykst og atvinnuleysi minnkar

Í nýbirtum hagtíðindum fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2012 gefur að líta ánægjulega þróun ef miðað er við sömu ársfjórðungana árin á undan. Atvinnuleysi mældist 4,7% á tímabilinu en á sama tíma árið á undan var atvinnuleysi 6%. Atvinnuþátttaka jókst um 0,3 prósentustig og er 78,8% á viðmiðunartímabilinu, þá dró nokkuð úr vinnutímafjölda, sem er nú að meðaltali 38,7 stundir á viku en dreifist nokkuð ójafnt á kynin. Karlar vinna að meðaltali 42,7 stundir á viku á meðan konur vinna að meðaltali 34,3 stundir.
Hægt er að lesa nánar hér á síðu Hagstofu Íslands.

Tekið af heimasíðu SGS