9. þing Starfsgreinasambands Íslands fer fram dagana 25.-27. október næstkomandi á Hótel Natura í Reykjavík. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. Á þingið í ár mæta alls 135 fulltrúar frá 18 aðildarfélögum sambandsins.

Dagskrá þingsins verður með hefðbundnu sniði en öll helstu gögn og upplýsingar um þingið eru aðgengilegar á sérstökum þingvef.

Miðvikudagur 25. september

Kl. 15:00 Setning og ávörp gesta

   Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra

   Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ

   Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS

Kl. 16:00 Kosning þingforseta og ritara, kynning á þingvef, álit kjörbréfanefndar, niðurstöður nefndanefndar 

Kl. 16:30 Þingi frestað


Fimmtudagur 26. september 

Kl. 09:00 Kynning á nefndarstörfum

   Kjara- og byggðamál

   Lífeyrismál

   Húsnæðismál

   Skipulag og innra starf

Kl. 09:10 Lög SGS og þingsköp SGS (kynning á tillögum laganefndar)

Kl. 09:30 Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra SGS og ársreikningar sambandsins 2021 og 2022

Kl. 10:15 Þróun og horfur í kjaramálum – Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs ASÍ

   -Umræður um kjaramál

Kl. 11:45 Brýning að lokinni kvennaráðstefnu – Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ

Kl. 12:00 Hádegishlé

Kl. 13:00 Staða félagsfólks aðildarfélaga SGS – Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu

   -Umræður

Kl. 14:00 Nefndarstörf hefjast

Kl. 17:00 Þingi frestað 

Kl. 19:00 Þingveisla


Föstudagur 27. september

Kl. 9:00 Afgreiðsla ályktana

   Lagabreytingar (umræða og afgreiðsla)

   Afgreiðsla starfs- og fjárhagsáætlunar

   Ákvörðun um skatthlutfall

Kl. 11:00 Kosningar

   Kosning formanns SGS 

   Kosning varaformanns SGS 

   Kosning aðalmanna í framkvæmdastjórn SGS

   Kosning varamanna í framkvæmdastjórn SGS 

   Kosning endurskoðenda og félagslegra skoðunarmanna reikninga 

   Kosning fastanefnda (Laganefnd og Kjörnefnd) 

Kl. 12:30 Þingslit