8. þing Starfsgreinasambands Íslands var sett í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 23. mars og mun standa yfir í þrjá daga. Þingið er æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára.

Reglulegt þing átti að halda haustið 2021 en því var frestað vegna Covid til vors. Á þingið í ár mæta alls 135 fulltrúar, u.þ.b. 52% konur, frá 19 aðildarfélögum sambandsins. 

Dagskrá þingsins verður með nokkuð hefðbundnu sniði en í samræmi  umhverfisstefnu SGS er þingið rafrænt, þ.e.a.s. svo til  engum pappír verður dreift heldur munu gögn þingsins verða aðgengileg á sérstökum þingvef. Þá munu kosningar þingsins sömuleiðis fara fram með rafrænum hætti. 

Kosningar til formanns, varaformanns og framkvæmdarstjórnar fara fram á föstudeginum kl. 10:30. Gert er ráð fyrir að nýr formaður Starfsgreinasambands Íslands slíti þingi kl. 12:00.