Félagsmönnum Vlf. Suðurlands býðst einstakt tækifæri á að sækja Dale Carnegie námskeið á sérstökum kjörum. Starfsmenntasjóðir félagsins styrkja allt að 90% af námskeiðsgjaldinu, m.v. réttindi hvers félagsmanns. 

Frekari upplýsingar um réttindi til styrks má nálgast á skrifstofu félagsins í síma 487-5000.

Markmið námskeiðsins eru:
Efla sjálfstraust til að láta til sín taka og styrkja sig í starfi
Bæta samskiptahæfni til að byggja traust, auka samvinnu og hafa jákvæð áhrif á starfsumhverfið
Auka tjáningarhæfni til að tjá sig af lipurð og háttvísi, líka undir álagi
Bæta viðhorf og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður og álag
Efla leiðtogafærni til að geta veitt öðrum innblástur

Hvenær:  Námskeiðið verður haldið föstudaginn 9. apríl, laugardaginn 10. apríl og sunnudaginn 11. apríl frá kl. 9.00-17 alla dagana.
Hvar:  Námskeiðið fer fram í Goðalandi Fljótshlíð

Sérstakt tilboð til félagsmanna kr. 127.200-
Styrkur m.v. full réttindi kr. 114.480-
Hlutur félagsmanns, m.v. full réttindi kr 12.720
Almennt verð á námskeiði er kr 159.000-

Ath: námskeiðsgjald er ekki endurgreitt.

Skráning á námskeiðið fer fram á https://island.dale.is/einstok-namskeid/

eða í síma 555 7080.  Ath að setja VLFS sem skýringu við skráningu.

Nánari upplýsingar veitir Unnur Magnúsdóttir, unnurm@dale.is, s. 698-4130