Tæknimán hefur gert samning við Landsmennt, starfsmenntasjóð félagsmanna innan stéttarfélaga SGS á landsbyggðinni. Samningurinn felur í sér fulla fjármögnun á ársáskrift rafrænna námskeiða. Tilboðið gildir til 31.ágúst nk..

Til að nýta sér tilboðið þarf að sækja um HÉR.

Inni á umsóknarsíðunni eru jafnframt nauðsynlegar upplýsingar fyrir umsækjandann. Í umsóknarferlinu velur hann hvaða stéttarfélagi hann er í.
Innifalið í ársáskrift að Tækninám er eftirfarandi:
• Aðgangur að öllum okkar námskeiðum, sem telja nú um 27.
• Öll ný námskeið, nýjungar og viðbætur á núverandi námskeiðum, ný námskeið sett inn á 4-8 vikna fresti að jafnaði.
• Aðgengi að leiðbeinendum.
• Reglulegar vefstundir þar sem farið er yfir ýmis áhugaverð atriði og nýjungar.
• Aðgangur að sértækum námskeiðum með blönduðu kennslufyrirkomulagi, sjálfsnám, vefstund, æfingar.
• Tækifæri til að taka þátt í að móta áherslur og forgangsröðun í framleiðslu nýrra námskeiða.

Um Tækninám.is
Tækninám.is er stafrænt fræðsluumhverfi sem bíður upp fjölda námskeiða fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Námskeiðin eru fyrst og fremst hugsuð fyrir algjöra byrjendur sem þurfa eða hafa áhuga á að ná tökum á tækninni.