Aðalfundur Verkalýðsfélags Suðurlands fór fram á Landhóteli þann 30. maí 2025. Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf: skýrsla stjórnar, yfirferð ársreiknings, kjöri stjórnar lýst og kynning og samþykkt breytinga á reglum sjúkrasjóðs. Rekstur félagsins var áfram traustur og allir sjóðir skiluðu afgangi. Heildarvelta félagsins jókst um 41% á milli ára og voru greiddar 103 milljónir kr. úr sjóðum til félagsmanna á árinu 2024. Samþykkt var að færa 5% af iðgjöldum félagssjóðs í Vinnudeilusjóð.
Samþykktar voru breytingar á reglum sjúkrasjóðs sem fela m.a. í sér hækkun árlegs hámarksstyrks úr 90.000 kr. í 120.000 kr., hækkun einstakra styrkja og lengdan umsóknarfrest. Breytingarnar taka gildi 1. júní 2025.
Tryggvi Ástþórsson lét af störfum eftir 24 ára farsælt starf fyrir félagið og var þakkað sérstaklega fyrir framlag sitt í mótun og uppbyggingu félagsins frá stofnun þess. Í hans stað kemur inn Einar Aron Kjartansson, áður meðstjórnandi. Helga Fjóla Guðnadóttir lét jafnframt af stjórnarsetu og var þökkuð kærlega fyrir hennar framlag til félagsstarfsins. Tveir nýir komu inn í varastjórn, þær Bjarnheiður Ástgeirsdóttir og Fanndís Ósk Pálsdóttir.
Við þökkum öllum sem mættu og óskum félagsfólki gleðilegs sumars.