• Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, 850 Hella

Fékkst þú launahækkun í apríl?

Verkalýðsfélag Suðurlands vill minna félagsmenn á að fylgjast með hvort kjarasamningsbundnar launahækkanir skiluðu sér þegar laun fyrir aprílmánuð voru greidd. Annars vegar er um að ræða kauptaxtahækkanir á almennum vinnumarkaði og hins vegar hækkanir hjá þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Kauptaxtar hafa verið uppfærðir inni á vef starfsgreinasambandsins.

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði:
Lágmarkskauptaxtar kjarasamninga SGS og SA hækkuðu um 0,58% frá og með 1. apríl 2025 vegna kauptaxtaauka.
Kauptaxtar SGS og SA
Kauptaxtar SGS og SA í veitinga-, gisti- og þjónustustarfsemi
Launahækkanir SGS og SA – reiknivél

Laun þeirra sem eru ekki á töxtum og þ.a.l. yfir lágmarkstöxtum kjarasamnings hækka ekki, en þess þarf þó að gæta að laun séu eftir breytinguna að lágmarki jafngóð og skv. kauptöxtum kjarasamnings.

Starfsfólk hjá ríkinu:
Ný launatafla tók gildi frá og með 1. apríl 2025. Hækkun grunnþreps í launatöflu er 23.750 kr., en þó að lágmarki 3,5%.
Kauptaxtar SGS og ríkisins.

Starfsfólk sveitarfélaga:
Ný launatafla tók gildi frá og með 1. apríl 2025. Hækkun grunnþreps í launatöflu er 23.750 kr., en þó að lágmarki 3,5%.
Kauptaxtar SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Deildu:

Fylgdu okkur

Þú getur fundið okkur á Facebook og Instagram
Skrifstofa
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, Hella
  • Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
Hafðu samband
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
Fylgdu okkur
© 2024 Verkalýðsfélag Suðurlands. Allur réttur áskilinn.