• Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, 850 Hella

SVONA SÆKIR ÞÚ UM STYRK ÚR SJÚKRASJÓÐI

Sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Suðurlands veitir félagsmönnum fjárhagslegan stuðning í tengslum við heilsu og velferð. Í boði eru margs konar styrkir, til dæmis vegna kaupa á gleraugum, heilsueflingar, læknisþjónustu, heyrnartækja og fleira. Hér að neðan finnur þú einföld og myndræn skref sem leiða þig í gegnum umsóknarferlið. Það tekur aðeins örfáar mínútur að sækja um.

Skref 1: Farðu inn á „Mínar síður“

Opnaðu heimasíðu Verkalýðsfélags Suðurlands (vlfs.is). Smelltu síðan á bláa hnappinn sem merktur er „Mínar síður“ efst til hægri á síðunni. Þar byrjar þú umsóknina þína um styrk úr sjúkrasjóði félagsins.

Skref 2: Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappi

Þegar þú hefur smellt á „Mínar síður“ lendir þú á innskráningarsíðu félagsins. Þar skráir þú þig inn annað hvort með rafrænum skilríkjum eða með því að nota auðkennisapp. Veldu þann valkost sem hentar þér og fylgdu skrefunum til að staðfesta innskráningu.

Skref 3: Opnaðu valmyndina og veldu „Styrkir“

Þegar þú ert komin/n inn á „Mínar síður“ skaltu smella á valmyndartáknið (≡) efst í vinstra horninu á skjánum. Í listanum sem birtist skaltu velja „Styrkir“. Þar finnur þú yfirlit yfir þá styrki sem þú getur sótt um, þar á meðal styrk úr sjúkrasjóði.

Skref 4: Veldu flokkinn „Sjúkrasjóður“ og styrkinn sem á við

Þegar þú ert komin/n inn í flipann „Styrkir“ skaltu velja „Sjúkrasjóður“ úr flokkalistanum. Þá birtist yfirlit yfir þá styrki sem í boði eru. Veldu þann styrk sem þú vilt sækja um og smelltu á „Sækja um“ til að hefja umsóknarferlið.

Skref 5: Fylla út upplýsingar og hlaða upp skjölum

Nú þarftu að fylla út nauðsynlegar upplýsingar í umsóknarformið:

  • Netfang og símanúmer
  • Bankareikning: Bankanúmer, höfuðbók og reikningsnúmer

Þá þarftu einnig að hlaða upp eftirfarandi skjölum:

  • Frumriti reiknings – kvittun eða reikningur
  • Greiðslustaðfestingu – t.d. bankakvittun sem sýnir að reikningurinn hefur verið greiddur

Þegar allar upplýsingar hafa verið fylltar inn og viðhengi hlaðin upp, geturðu smellt á „Áfram“ til að halda áfram með umsóknina.

Stöðu umsóknarinnar geturðu fylgst með inn á Mínum síðum, undir Styrkjasaga.

Deildu:

Fylgdu okkur

Þú getur fundið okkur á Facebook og Instagram
Skrifstofa
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, Hella
  • Mán - Fim 9-16 Fös 9-16
Hafðu samband
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
Fylgdu okkur
© 2024 Verkalýðsfélag Suðurlands. Allur réttur áskilinn.