
Orlofssjóður VLFS hefur hafið sölu á gjafabréfum Icelandair fyrir félagsfólk Verkalýðsfélags Suðurlands. Gjafabréfin eru að verðmæti 30.000 kr. en söluverð bréfanna er 22.000 kr.
Kaup fara fram í orlofskerfi félagsins og gjafabréfskóði er sendur í tölvupósti að greiðslu lokinni.
Til að eiga rétt á kaupum þarf viðkomandi að hafa greitt samfellt í félagssjóð eða orlofssjóð VLFS síðustu sex mánuði fyrir kaup. Hver einstaklingur getur keypt að hámarki þrjú gjafabréf á almanaksári.
Gjafabréfin eru í boði meðan birgðir endast. Hámark þriggja bréfa á almanaksári miðast við að gjafabréf séu til í orlofskerfinu þegar kaup fara fram.
Gjafabréfin gilda upp í allt áætlunarflug Icelandair, innanlands og utan, auk pakkaferða Icelandair Vita. Einnig má nota þau til greiðslu fyrir breytingagjöld, sætispantanir og aukafarangur, ásamt sköttum og gjöldum sem fylgja bókuninni.
Hægt er að nota fleiri en eitt gjafabréf í sömu bókun. Gjafabréfin eru margnota: ef inneignin er ekki öll nýtt við fyrstu kaup má nota eftirstöðvar síðar.
Gjafabréfin gilda í fimm ár frá útgáfu Icelandair (ekki frá kaupdegi bréfanna). Gildistími viðkomandi gjafabréfs fylgir því við afhendingu.
Bóka þarf ferðina og nýta gjafabréfskóðann áður en gildistíminn rennur út. Ferðin sjálf má fara fram síðar. Hægt er að bóka allt að 11 mánuði fram í tímann.
Kauptu gjafabréf í orlofskerfi VLFS í gegnum heimasíðu félagsins/ mínar síður .
