• Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, 850 Hella

Sjúkrasjóður

Hérna má finna upplýsingar um styrki og sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði okkar.

Heilsu og forvarnarstyrkir

Sjúkrasjóðurinn greiðir sjóðfélögum sem uppfylla skilyrði reglugerðar styrki úr sjóðnum. Gögn skv. úthlutunarreglum verða að liggja fyrir til að sjóðfélagi fái greitt úr sjóðnum.

Umsóknir ásamt réttum fylgigögnum þurfa að berast sjóðnum eigi síðar en 23. þess mánaðar sem greitt er úr sjóðnum að öðrum kosti frestast afgreiðsla þar til réttum gögnum skv. úthlutunarreglum hefur verið skilað.

Heimilt er að óska eftir þýðingu gagna frá löggiltum skjalaþýðanda og ber umsækjandi kostnað af þýðingu.
Skila þarf inn staðfestingu á greiðslu, bankakvittun úr íslenskum banka sem
staðfestir greiðsluna í íslenskum krónum

Umsóknir eru gerðar rafrænt gegnum mínar síður.
Samþykktar umsóknir eru greiddar út seinasta virka dag í hverjum mánuði.

Styrkir

Líkamsrækt / Heilsuefling

Endurgreidd er 50% af kostnaði hverrar nótu, þó að hámarki kr. 40.000 á hverju almanaksári.
Til að fá endurgreiðslu þarf að skila inn greiðslukvittun.
Reglan gildir fyrir nótur sem eru keyptar eftir 1. maí 2024.

Leiðbeiningar til að sækja kvittun frá World Class

Gleraugna- / Linsustyrkur

Greitt er vegna einna gleraugna eða linsa.
Endurgreidd er 50% af kostnaði gegn framvísun nótu, en þó að hámarki 65.000 kr.
Nótur dagsettar fyrir 30. apríl 2024 greiðast að hámarki 50.000 kr. samkvæmt reglum sjóðsins.

Laser / Lasik aðgerð

Endurgreidd er 50% af kostnaði, þó að hámarki 45.000 kr. á hvert auga.
Til að fá endurgreiðslu þarf að skila inn greiðslukvittun.

Fæðingarstyrkur

Félagsmaður á rétt á styrk að upphæð 120.000 kr.
Skila þarf inn fæðingarvottorði til að fá styrkinn greiddan.
Réttur er reiknaður út frá fæðingardegi barns/barna.

Tæknifrjóvgun (IVF)

Styrkur er greiddur í allt að þrjú skipti vegna tækni- eða glasafrjóvgunar, framkvæmdar á Íslandi.
Endurgreidd er 50% af hlut sjúklings, þó að hámarki
90.000 kr.
Félagsmaður þarf að skila inn vottorði frá lækni sem framkvæmir aðgerðina, eða vottorði frá heimilislækni, þar sem fram kemur að um slíka aðgerð sé að ræða.
Fái félagsmaður fulla greiðslu frá öðrum aðila, fellur réttur hans niður.

Tannlæknakostnaður

Styrkur vegna tannlækninga að hámarki 20.000 kr.
Skila þarf inn greiðslukvittun til að fá endurgreiðslu.
Gildir fyrir nótur greiddar eftir 1. maí 2024.
Nótur dagsettar fyrir 30. apríl 2024 greiðast að hámarki 15.000 kr. samkvæmt reglum sjóðsins.

Styrkur í formi dagpeninga vegna áfengis- og fíkniefnameðferðar.

Greitt er vegna einnar meðferðar á fimm ára fresti, miða skal við grein 12.3 í reglugerði sjóðsins.

Dagpeningar eru greiddir í allt að 90 daga.

Skila þarf inn vottorði frá íslenskri meðferðarstofnun og vottorði frá atvinnurekanda um að viðkomandi fái ekki greidd laun á tímabilinu.

Greitt er vegna einna gleraugna/linsa. Greitt er 50 % af kostnaði gegn framvísun nótu en þó að hámarki 65.000 kr.

Nótur dagsettar fyrir 30.apríl 2023 greiðast að hámarki kr. 50.000- skv. reglum sjóðsins.

Göngugreining
• Veittur er styrkur vegna göngugreiningar að hámarki 10.000 kr. á hverju almanaksári.
• Skila þarf inn greiðslukvittun til að fá endurgreiðslu.

Sjúkraþjálfun / Sjúkranudd og Hnykkjari
• Greitt er 50% af kostnaði sjúklings samkvæmt greiðslukvittun.
• Hámarksfjöldi er 20 skipti á hverju almanaksári.
• Skila þarf inn greiðslukvittun, þar sem fram kemur fjöldi skipta.

Sjúkraþjálfun / Sjúkranudd og Hnykkjari
• Greitt er 50% af kostnaði sjúklings samkvæmt greiðslukvittun.
• Hámarksfjöldi er 20 skipti á hverju almanaksári.
• Skila þarf inn greiðslukvittun, þar sem fram kemur fjöldi skipta.

Skoðun hjá hjartasérfræðingi

• Greitt er 50% af kostnaði sjúklings, þó að hámarki 20.000 kr.
• Skila þarf inn greiðslukvittun til að fá endurgreiðslu.

Skoðunargjald vegna ristil- og magaspeglunar

• Greitt er 50% af kostnaði sjúklings, þó að hámarki 20.000 kr. á hverju almanaksári.
• Skila þarf inn greiðslukvittun til að fá endurgreiðslu.

Krabbameinsskoðun – Skoðunargjald og framhaldsskoðun

• Sjóðurinn greiðir fullan styrk vegna fyrstu skoðunar, allt að 5.000 kr.
• Sjóðurinn greiðir einnig styrk vegna framhaldsrannsókna allt að 20.000 kr., einu sinni á hverjum 12 mánuðum, þó ekki meira en 50% af kostnaði.
• Styrkur er veittur vegna framhaldsrannsókna hjá Krabbameinsfélaginu og vegna blöðruhálsskoðana karla eða ristilsskimunar/speglunar.

Dvöl á Heilsustofnun NLFÍ
• Greitt er 50% af kostnaði sjúklings, að hámarki 50.000 kr. á hverju almanaksári.
• Skila þarf inn afriti af beiðni frá lækni og greiðslukvittun til að fá endurgreiðslu.

Útfarastyrkur

• Styrkur að upphæð 50.000 kr. er veittur til félagsmanna sem ekki falla undir reglugerð sjóðsins en voru félagsmenn við starfslok.
• Skilyrði styrkveitingarinnar er að hinn látni hafi verið sjóðsfélagi í a.m.k. 5 ár fyrir starfslok.
• Styrkurinn fellur niður við 80 ára aldur.
• Vitja þarf styrksins innan 6 mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
• Skila þarf inn dánarvottorði.

Sjúkradagpeningar

Félagsmenn VLFs geta sótt um sjúkradagpeninga þegar launagreiðsluskylda atvinnurekanda er liðin. Tilgangur sjóðsins er að veita félagsmönnum stuðning vegna tekjutaps af völdum veikinda eða slysa.

Veikindi/slys: Dagpeningar greiðast í allt að 120 daga eftir að launagreiðslum samkvæmt kjarasamningi lýkur. Heildargreiðslur (þ.m.t. almannatryggingar og lögbundnar bætur) mega ekki fara yfir 80% af meðallaunum síðustu 6 mánaða.

Veik börn: Greiðslur í allt að 90 daga vegna langveikra eða alvarlega fatlaðra barna undir 18 ára sem þurfa sérstaka umönnun. Hámark 80% af meðallaunum, miðað við starfshlutfall.

Veikur maki: Dagpeningar í allt að 90 daga vegna mjög alvarlegra veikinda maka. Hámark 80% af meðallaunum miðað við starfshlutfall.


Umsóknir eru sendar í tölvupósti á vs@vlfs.is

Með umsókn þarf að fylgja:

Sjúkradagpeningavottorð (má ekki vera eldra en 1 mánaðar)

Vottorð frá atvinnurekanda um síðasta greidda veikindadag

Staðfesting á hvort nota eigi skattkort og þá frá hvaða dagsetningu
ATH.
Réttur til styrks úr sjóðnum fyrnist sé hans ekki vitjað innan tólf mánaða frá því að bótaréttur skapaðist og á einungis við þegar félagsmaður hefur tæmt rétt hjá atvinnurekanda og ekki er um aðra framfærslu að ræða.

Umsókn

Við umsókn þarf eftirfarandi að fylgja með:

Sjúkradagpeningavottorð frá viðkomandi lækni.
Vottorði frá launagreiðenda með upplýsingum um hvenær samningsbundinni- og eða lögboðinni launagreiðslu atvinnurekanda lauk.
Vottorð launagreiðenda (staðlað form)
Stöðu skattkorts, upplýsingar frá RSK. Öðrum gögnum sem við á, t.d. frá Tryggingastofnun Ríkisins.

Umsókn sem og gagnaskil er í gegnum mínar síður.
Mínar Síður

Vottorð atvinnurekanda

Staðlað sniðmát fyrir vottorð atvinnurekanda í tengslum við umsókn um sjúkradagpeninga.
Vottorð

Reglugerð

Reglugerð sjúkrasjóðs Verkalýðsfélag Suðurlands er hægt að nálgast hérna.
Reglugerð

Úthlutunarreglur

Úthlutunarreglur sjúkrasjóðs Verkalýðsfélag Suðurlands er hægt að nálgast hérna.
Úthlutunarreglur

Dánarbætur

Dánarbætur

Eingreiddar dánarbætur eru greiddar samkvæmt gr. 12.4 í reglugerð sjúkrasjóðsins. Réttur til dánarbóta fellur niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá andláti sjóðfélaga. Dánarbætur greiðast vegna virks og greiðandi sjóðfélaga og eru rétthafar bóta maki og börn undir 18 ára aldri. Upphæð eingreiddra dánarbóta á árinu 2021 er 404.031 kr
Skrifstofa
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, Hella
  • Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
Hafðu samband
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
Fylgdu okkur
© 2024 Verkalýðsfélag Suðurlands. Allur réttur áskilinn.