
Hátíðarhöld Verkalýðsfélags Suðurlands á 1. maí fóru afar vel fram í íþróttarhúsinu á Hellu. Fjöldi fólks lagði leið sína í húsið til að eiga góða stund saman, fagna baráttudegi launafólks og njóta fjölbreyttrar dagskrár fyrir alla fjölskylduna.
Húsið opnaði klukkan 14:00 og skömmu síðar hófst formleg dagskrá með setningarræðu Guðrúnar Elínar Pálsdóttur, formanns Verkalýðsfélags Suðurlands. Í ræðu sinni fjallaði hún um mikilvægi 1. maí sem dags samstöðu, réttinda og verkalýðsbaráttu. Hún minnti á að réttindi launafólks hefðu ekki komið af sjálfu sér heldur væru afrakstur baráttu fólks sem stóð saman.
Guðrún Elín vék einnig að 25 ára afmæli Verkalýðsfélags Suðurlands og fór yfir vöxt félagsins frá stofnun þess árið 2001. Hún ræddi breytingar á samfélagi og vinnumarkaði, áhrif tæknibreytinga og mikilvægi raunverulegs samtals, hlustunar og samvinnu í síbreytilegu samfélagi.
Þá fjallaði hún um þær efnahagslegu áskoranir sem launafólk stendur frammi fyrir, meðal annars vegna verðlags, húsnæðiskostnaðar og vaxta. Hún lagði áherslu á mikilvægi kjarasamninga og þess að launafólk standi ekki eitt þegar á reynir.
Í lok ræðu sinnar þakkaði Guðrún Elín þeim sem hafa lagt sitt af mörkum í þágu félagsins í gegnum árin. Af því tilefni heiðraði hún tvo fyrrverandi forystumenn félagsins, Má Guðnason, fyrrverandi formann, og Tryggva Ástþórsson, fyrrverandi varaformann, fyrir störf þeirra, leiðsögn og ómetanlegt framlag til félagsins.
Að setningu lokinni flutti Saga Kjartansdóttir erindi þar sem hún fjallaði um stöðu verkalýðshreyfingarinnar á breyttum vinnumarkaði. Hún lagði áherslu á að styrkur samfélagsins fælist í velferð allra og að sterkt samfélag, sterkt launafólk og öflug verkalýðshreyfing væru órjúfanlega tengd.
Í erindi sínu ræddi Saga meðal annars breytta samsetningu vinnuaflsins, fjölgun erlendra ríkisborgara á íslenskum vinnumarkaði og mikilvægi þess að verkalýðshreyfingin nái til allra hópa launafólks. Þá fjallaði hún um áhrif tæknibreytinga, sjálfvirknivæðingar, gervigreindar og nýrra ráðningarforma á réttindi og stöðu launafólks. Hún minnti á að verkalýðshreyfingin þyrfti að þróast með samfélaginu, bregðast við breytingum og tryggja að launafólk hafi rödd þegar ný tækni og breytt vinnufyrirkomulag móta framtíð vinnumarkaðarins.
Dansnemendur Helgu Sunnu stigu því næst á svið og glöddu viðstadda með skemmtilegu og líflegu atriði. Frammistaða þeirra setti fallegan og fjörugan svip á dagskrána og var vel tekið af gestum.
Sigurður Matthías Sigurðsson tók síðan nokkur lög við góðar undirtektir gesta og Glódís spilaði undir á píanó. Saman sköpuðu þau notalega og hátíðlega stemningu í salnum og gaf atriðið gestum tækifæri til að njóta tónlistar og samveru í góðu andrúmslofti.
Yngstu gestirnir fengu svo heldur betur sitt. Á svæðinu voru tveir hoppukastalar sem vöktu mikla gleði meðal barnanna, auk þess sem Blaðrarinn var á svæðinu og blés upp blöðrudýr og önnur skemmtileg blöðrulistaverk. Þá mætti Lína Langsokkur einnig á svæðið og vakti mikla lukku meðal yngstu gesta. Allt þetta setti skemmtilegan og fjölskylduvænan svip á hátíðarhöldin.
Hátíðarhöldunum lauk klukkan 16:00 eftir vel heppnaða dagskrá þar sem gleði, samvera og samstaða voru í fyrirrúmi. Verkalýðsfélag Suðurlands þakkar öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarhaldanna, sem og gestum fyrir komuna og fyrir að gera daginn ánægjulegan og eftirminnilegan.















