
Stjórnarkosningar í Verkalýðsfélagi Suðurlands eru nú hafnar. Kosið er rafrænt og stendur kosning yfir dagana 24.–28. apríl.
Kosning hófst kl. 10:00 föstudaginn 24. apríl og lýkur kl. 15:00 þriðjudaginn 28. apríl.
Í framboði eru tveir listar:
A-listi uppstillingarnefndar
Formannsefni: Guðrún Elín Pálsdóttir
B-listi
Formannsefni: Bergþóra Haralds Eiðsdóttir
Allir fullgildir félagsmenn Verkalýðsfélags Suðurlands hafa kosningarétt.
Til að kjósa rafrænt er nauðsynlegt að hafa rafræn skilríki eða Auðkennisappið.
Rafræn skilríki er hægt að nálgast hjá símafyrirtæki, í banka eða hjá Auðkenni, Borgartúni 31.
Ef kosningarsíðan birtist ekki eftir að kosning hefst eru félagsmenn beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins.
Kærur vegna kosningarinnar skal senda á netfangið vs@vlfs.is.
