
Dagana 13. og 14.mars kom stjórn og starfsfólk Verkalýðsfélags Suðurlands (VLFS) saman ásamt fulltrúum frá Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) á stefnumótunarfund þar sem farið var yfir stöðu félagsins og helstu verkefni fram undan.
Á fundinum var sérstaklega lögð áhersla á að efla þjónustu við félagsmenn, styrkja vinnustaðaeftirlit og bæta upplýsingamiðlun. Þá var einnig rætt um hvernig félagið geti betur mætt þeim áskorunum sem eru til staðar á vinnumarkaði.
Markmið fundarins var að móta skýrari stefnu fyrir félagið til næstu ára og tryggja að starfsemi þess þróist í takt við þarfir félagsmanna.
Að sögn formanns var fundurinn mikilvægur áfangi í þeirri vinnu:
„Það er lykilatriði að við séum með skýra sýn og sameiginlegar áherslur. Þessi vinna styrkir grunninn að enn öflugra starfi í þágu félagsmanna,“ segir formaður.
Næstu skref felast í því að vinna áfram úr niðurstöðum fundarins og útfæra þær í skýra og markvissa stefnu fyrir félagið.
