Þann 1.maí ár hvert eiga félagsmenn Vlf.Suðurlands sem eru starfsmenn sveitarfélaga að fá sérstaka persónuuppbót (orlofsuppbót). Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.
Persónuuppbót er föst fjárhæð og á árinu 2025 nemur upphæðin kr. 59.500.-
Áunna persónuuppbót skal gera upp við starfslok, ekki eru greidd orlofslaun á persónuuppbótina.
Félagsmenn, fylgist með á launaseðli hvort uppbótin hafi skilað sér rétt.
https://vlfs.is/wp-content/uploads/2025/03/kjarasamningur-sgssis-2024-2028_vefur.pdf