Þann 30. apríl sl. kvað Félagsdómur upp dóm í máli sem Verkalýðsfélag Suðurlands rak fyrir hönd félagsmanns síns gegn hóteli á suðurlandi. Félagsmaðurinn hafði áður unnið á hótelinu, en þegar hann starfaði þar hafði eigandi og stjórnarmaður hótelsins hótað honum uppsögn ef hann vildi vera í Verkalýðsfélagi Suðurlands. Viku síðar var félagsmanninum sagt upp.
Félagsdómur taldi þetta athæfi vera skýrt brot gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938, en skv. 4. gr. þeirra laga er atvinnurekanda m.a. óheimilt að hóta starfsmanni uppsögn eða segja honum upp vegna afskipta hans af stéttarfélögum. Ákvæðinu er ætlað að tryggja stjórnarskrárbundið félagafrelsi launafólks og rétt þess til að vera í stéttarfélögum og beita sér á vettvangi þeirra.
Viðurkenndi dómurinn að um væri að ræða alvarleg brot gegn ákvæðinu og dæmdi hótelið til greiðslu sektar í ríkissjóð að fjárhæð 1.300.000 kr., auk þess sem hótelið var dæmt til að greiða stefnanda málskostnað.
Hægt er að nálgast dóminn hér: Dómur/úrskurður