• Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, 850 Hella

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar haldinn

Nýkjörin stjórn Verkalýðsfélags Suðurlands hélt sinn fyrsta fund eftir aðalfund félagsins. Á dagskrá voru meðal annars kynning á hlutverki stjórnar, yfirferð á starfsemi félagsins og verkefnum fram undan.

Meðal þeirra mála sem rædd voru er staða kjarasamninga og forsenduákvæði þeirra sem verða til skoðunar í haust. Um er að ræða mikilvægt mál sem getur haft veruleg áhrif á framhald kjarasamninga og því fylgist félagið grannt með þróun verðbólgu og öðrum þeim þáttum sem liggja til grundvallar forsendunum.

Við bjóðum nýjan stjórnarmann Önnu Jarymowicz velkominn til starfa og hlökkum til áframhaldandi samstarfs í þágu félagsmanna.

Deildu:

Fylgdu okkur

Þú getur fundið okkur á Facebook og Instagram
Skrifstofa
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, Hella
  • Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
Hafðu samband
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
Fylgdu okkur
© 2024 Verkalýðsfélag Suðurlands. Allur réttur áskilinn.