Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands varar starfsfólk í veitingageiranum við meintu „stéttarfélagi“ sem stofnað var nýverið og ber heitið Virðing. Virðing ber öll merki þess að vera gervi „stéttarfélag“, stofnað af hálfu atvinnurekenda í veitingageiranum, stendur utan heildarsamtaka launafólks og hefur gert gervikjarasamning sem er ekki í nokkru samræmi við þá lögmætu samninga sem eru í gildi í veitingageiranum.
Þau kjör sem Virðing býður félagsfólki sínu eru ekki í samræmi við þá samninga sem eru í gildi í veitingageiranum. Þvert á móti felur kjarasamningur Virðingar við SVEIT (Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði) í sér verulegar skerðingar á launum og réttindum starfsfólks og má sem dæmi nefna:
Því skal haldið til haga að um umrædd störf er í gildi kjarasamningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem kveður á um lágmarkskjör fyrir alla í viðkomandi starfsgrein. Samkvæmt lögum er óheimilt að semja um lakari kjör en kveðið er á um í þeim samningi. Samningur Virðingar og SVEIT grefur á alvarlegan og ólögmætan hátt undan réttindum launafólks og þeim kjarasamningi sem það starfar eftir.
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands fordæmir þessa ófyrirleitnu aðför sem gengur út á að brjóta upp samstöðu meðal starfsfólks í greininni og fer á svig við þau lög og reglur sem gilda á íslenskum vinnumarkaði.
Starfsgreinasamband Íslands hvetur félagsfólk til að standa þétt saman um sín kjarasamnings- og lögbundnu réttindi og hafa samband við sitt stéttarfélag til að afla sér frekari upplýsinga um sín réttindi og stöðu. Aðildarfélög sambandsins munu nú sem endranær standa þétt að baki sinna félagsmanna og verja þeirra réttindi – réttindi sem hafa byggst upp í gegnum árin með þrotlausri baráttu og samstöðu.
SGS krefst þess að SVEIT láti af þessari alvarlegu aðför að kjörum og réttindum verkafólks á veitingamarkaði og virði þau lágmarksréttindi sem um hefur verið samið á íslenskum vinnumarkaði.