• Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, 850 Hella

Félagsmannasjóður – greitt úr sjóðnum 1. febrúar

Kæri félagsmaður, starfaðir þú hjá sveitarfélagi á síðasta ári?

Vissir þú að í gildandi kjarasamningi SGS við sveitarfélögin er fjallað um Félagsmannasjóð, nánar tiltekið í kafla 13.8. Þar segir:

13.8. Félagsmannasjóður
Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag í félagsmannasjóð sem nemur 2,2% af heildarlaunum félagsmanna.  Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram 1. febrúar ár hvert samkvæmt stofnskrá sjóðsins.
Gjaldið var áður 1,5% en er 2,2% frá 1. apríl 2024.

Verkalýðsfélag Suðurlands á aðild að sjóðnum og ber að standa skil á þessum greiðslum til félagsmanna sem starfa eftir þessum samningi 1. febrúar ár hvert fyrir árið á undan. Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Verkalýðsfélag Suðurlands hafi bankaupplýsingar félagsmanna sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum. Það er þau sem voru/eru starfandi hjá sveitarfélagi á síðasta ári.

Athugið að ekki er tekin staðgreiðsla af upphæðinni sem greidd er út til félagsmanna. Því þarf að greiða skatta af þessum greiðslum eftir á. 

Kíktu inn á Mínar Síður og kannaðu þínar upplýsingar.

Þar inni má einnig setja inn eða laga ef þarf umbeðnar upplýsingar fyrir Félagsmannasjóðinn eins og t.d. netfang, símanúmer og bankareikning.

Athugið að þeir sem eru á almennum vinnumarkaði eiga ekki rétt á greiðslum úr félagsmannasjóði.

Deildu:

Fylgdu okkur

Þú getur fundið okkur á Facebook og Instagram
Skrifstofa
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, Hella
  • Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
Hafðu samband
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
Fylgdu okkur
© 2024 Verkalýðsfélag Suðurlands. Allur réttur áskilinn.