Á aðalfundi Verkalýðsfélags Suðurlands 2025 voru samþykktar tillögur að breytingum á reglum og hámarksgreiðslum úr sjúkrasjóði. Breytingarnar tóku gildi 1. júní 2025.
Helstu breytingar
Heildarstyrkur á ári hækkar úr 90.000 kr. í 120.000 kr.
Hækkun á einstaka styrkjum:
Útfararstyrkur: 70.000 kr. (áður 50.000 kr.)
Heilsurækt: 120.000 kr. (áður 90.000 kr.)
Heyrnartæki: 25.000 kr. (áður 20.000 kr.)
Hjartasérfræðingur: 25.000 kr. (áður 20.000 kr.)
Ristilspeglun: 100.000 kr. (áður 90.000 kr.)
Sjúkraþjálfun: 120.000 kr. (áður 90.000 kr.)
Aldurstakmark vegna útfararstyrks verður afnumið (áður miðað við 80 ára aldur)
Lengri umsóknarfrestur
Félagsmenn fá nú 12 mánuði frá útgáfudegi reiknings til að sækja um styrki (var áður 6 mánuðir).
Réttur eftir starfslok
Þeir sem hætta að greiða til félagsins vegna aldurs eða örorku, og hafa greitt í sjóðinn í minnst 5 ár, halda rétti til að sækja um styrki í allt að 12 mánuði eftir að greiðslur hætta. (áður var enginn réttur eftir starfslok)